Sara Gabríela er gestur Karlmennskunnar í þætti 3.12. Við ræðum þögn, þöggun og það að segja frá reynslu sinni af ofbeldi.
Við áttum börn á sama leikskóla og höfðum spjallað lítillega. Þegar ég rakst á Söru á TikTok kannaðist ég við nafnið en ekki þessa róttæku, beinskeyttu og hæðnu hlið hennar. Í viðtalinu segir hún frá því sem liggur að baki.
Viðkvæm umfjöllun: Í þættinum er rætt um sjálfsvígstilraun, kynferðisofbeldi, ofbeldi gegn börnum og morðhótanir.
Þátturinn kom út 30. mars 2026 og er 80 mínútur.