Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#7 Sóley Tómasdóttir - Femínískur aktívismi

„Að passa sig er samofið femínískum aktívisma [...] útskýra að við hötum ekki karla og ég elski
alveg son minn“. Sóley Tómasdóttir femínisti og fyrrverandi forseti borgarstjórnar í Reykjavík ræðir
um það hvernig er að vera femínískur brautryðjandi og hafa verið gerð að holdgervingi femínismans
á Íslandi. Förum yfir femíníska aktívismann, andspyrnuna og hvernig hún er að beita sér í dag.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#6 „Góðan daginn faggi“ - Bjarni Snæbjörnsson

„Ég bað til Guðs á hverju kvöldi um að ég væri ekki hommi“. Bjarni Snæbjörnsson leikari lýsir upplifun
sinni af því að vera samkynhneigður karlmaður í samfélagi sem er gegnsýrt af gagnkynhneigðum
viðmiðum. Í gegnum spjall við Bjarna verður leitast við að að svara hvað er homophobia og hvernig
heterósexismi getur skýrt þöggun, útilokun og vanlíðan (ó)gagnkynhneigðra karla og hinsegin fólks.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#5 Klám

Klám fyrir sumum er ekki endilega það sama og klám er fyrir öðrum. Kynferðislega örvandi efni hefur þróast á síðustu árum og áratugum frá óaðgengilegum erótískum klámblöðum og rándýrum rauðum símalínum yfir í ókeypis og aðgengilegt internet klám. Sigga Dögg kynfræðingur, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verkefnastýra hjá Stígamótum og Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari útskýra klám og áhrif þess á líf barna og fullorðinna.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#4 Nafnlausu skrímslin

Gerendur ofbeldis ganga huldu höfði í íslensku samfélagi í skjóli mýta um fólk sem beitir ofbeldi.
Sérfræðingar í málefnum brotaþola og gerenda telja að nauðgunarmenningu og ofbeldi verði ekki útrýmt
nema með því að varpa ljósi á gerendur og skapa menningu þar sem þeir geta og þurfa að axla ábyrgð.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#3 Feður og jafnrétti

Ísland mælist með mesta jafnrétti í heiminum, samkvæmt alþjóðlegum samanburði World Economic Forum, þrátt fyrir
að hér ríki íhaldssöm viðhorf, meðal annars gagnvart foreldrahlutverkinu, sem hindra jafnrétti. Í þessum þætti er leitast
svara við því hvernig foreldrahlutverkið er fyrirstaða jafnréttis og hver ábyrgð karla er í því samhengi? Viðmælendur eru
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir kynjafræðingur og doktorsnemi við menntavísindasvið Háskóla Íslands, Sunna
Símonardóttir aðjúnkt og nýdoktor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#2 Karlar og tilfinningar

Karlar upplifa skömm og bæla og fela tilfinningar sínar fyrir öðrum. Sálfræðingar segja að karlar leiti sér
síður aðstoðar vegna tilfinningavanda og þeir þurfi að sýna hugrekki til að gangast við tilfinningum sínum.

Read More
Thorsteinn V. Einarsson Thorsteinn V. Einarsson

#1 Eðli karla

Klín­ísk­ur sál­fræð­ing­ur bend­ir á að heil­inn þró­ast stöð­ugt og breyt­ist í takt við lífs­reynslu, en hún, sagn­fræð-
ing­ur og heim­spek­ing­ur sam­mæl­ast um að allt sem skipti máli hvað varð­ar kyn sé fé­lags­lega ákvarð­að.

Read More