BLABLA

PODCAST STUDIO

Hlaðvarpsstúdíó fyrir þau sem vilja alvöru hljóðgæði og myndrænt samfélagsmiðlaefni á aðgengilegan og ódýran hátt.

Blabla er ca 25 fm hlaðvarpsstúdíó innréttað fyrir hljóð og mynd. Bakgrunnur er mattur svartur og á öllum veggjum er aukalag af steinull og sérstakt hljóðvistar-efni. Í stúdíóinu eru fjórir Shure SM7B hljóðnemar, Rodecaster pro mixer, tvær Logitech MX Brio vefmyndavélar og led panelar. Þú plöggar bara einni snúru í tölvuna frá Thunderbolt og getur byrjað að taka upp hljóð og mynd í topp gæðum.

Hægt er að stilla upp á ólíkan hátt með sófa, stólum eða hægindastólum - með borði, hliðarborði eða engu borði. Þá er hægt að notast við ólíka bakgrunnsliti og stilla lýsingu eftir smekk.

Verð

Eitt skipti (ca 90 mín) 29.900 krónur

*Fastakúnni (ca 360 mín í mánuði) 34900 krónur

Eitt skipti (ca 90 mín) með hljóðmanni 49.900 krónur

*Fastakúnni greiðir mánaðarlega og er uppsagnarfrestur tveir mánuðir.

Four Shure SM7B microphones
Rodecaster Pro 1