Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir, kynjafræðingur og kennari, er gestur Karlmennskunnar í þætti 3.16. Hún segir frá meistararannsókn sinni á ofbeldi í nánum hinsegin samböndum.
Við förum inn á þögnina, skömmina, óttann við fordóma og valdatengsl innan hinsegin samfélagsins. Hvernig tölum við um ofbeldi innan jaðarsetts samfélags á tímum bakslags? Og hvaðan kemur hugmyndin um að hinsegin sambönd séu alltaf falleg, heilnæm og laus við ofbeldi?
Þátturinn kom út 27. maí 2026 og er 62 mínútur.