Iris Edda Nowenstein er gestur Karlmennskunnar í þætti 3.17. Við ræðum íslenskuna sem lifandi, breytilegt og pólitískt fyrirbæri. Iris er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum.
Við spjöllum um fjöltyngi, stafsetningarskömm, málfarslöggur, kynjað og kynhlutlaust tungumál, innflytjendur og inngildingu. Hvernig ræktum við íslenskuna án þess að nota hana sem vopn gegn fólki?
Þátturinn kom út 14. júní 2026 og er 43 mínútur.